Sagan
Rætur Merkismanna standa á gömlum merg. Það var síðla árs 1989 að
tveir ungir Siglfirðingar og frændur Gunnar Trausti og Birgir
Ingimarsson keyptu fyrirtækið Skilti sf. sem að stofni til var 10 ára
gamalt og hafði hafið göngu sína í Þorlákshöfn undir nafninu Flosprent.
Skilti sf. var aðeins tveggja ára þegar það sameinaðist Teiknistofu
Birgis sf. og Tækniprenti hf. og hinn 1. ágúst 1991 urðu til Merkismenn
ehf. hinir fyrri sem voru í 6 ár staðsettir í Skeifunni 3c við góðan
orðstý. Árið 1997 var enn á ný hugað að stækkun og fyrirtækin Merkismenn
ehf., Neon-þjónustan hf og Eureka hf. voru sameinuð í Nota bene hf. En
ekki er allt gull sem glóir og þeir Birgir og Gunnar yfirgáfu Nota bene
eftir skamma viðveru og héldu á vit nýrra ævintýra og Gunnar Trausti
stofnaði G&T Merkismenn árið 2000 og Birgir hafði stofnaði
auglýsingastofuna Taktík ehf skömmu áður. NB var innsiglað Siglfirðingalaust 2002.
Reynslumiklir
Eins
og sjá má hér á undan er gífurleg reynsla að baki þessum ferli í
skiltagerð hjá Gunnari Trausta og ekki skemmdi fyrir að til starfa hjá
G&T Merkismönnum í mars 2002 réðst kvikmynda- og
skiltagerðamaðurinn Kristberg Óskarsson frá Mosgerði sem á að baki 15
ár í skiltagerðarbransanum hjá Útliti, Neon-þjónustunni og Nota bene.
En Kristberg er nú horfinn til annarra starfa. Brátt bættust í hópinn
Þórhallur Árnason úr Breiðholti, sem starfað hafði í Nota bene og hinn
þýskættaði Eiríkur Sv. Björnsson sem starfað hafði hjá Undur og Stórmerki,
Fjölprenti, og Merkingu. Og enn fjölgaði: Íraninn Nader kom frá
Rúmerníu og fánaprentarinn Símon Friðriksson kom frá Útifánum og
Silkiprenti. Þá kom sterkur inn árið 2006 Siglfirðingurinn Guðmundur Gauti
Sveinsson sem hefur hljóðin fögur eins og afi hans; og Katrín Drífa
Sigurðardóttir reykjavíkurmær. En mjög kært er á milli þessa unga pars sem er á leiðinni gegnum Héðinsfjarðargöngin til Siglufjarðar.
Enn bættist við Sverrir Einarsson, Árbæingur og miðjumaður og nú síðast Hilmir Berg
Ragnarsson bassaleikari úr Perlu sem er aðstoðarmaður Símonar við
fánaprentunina. Þá hefja störf hér bráðlega Brynjar Páll Björnsson sem er bróðir Eiríks og er bassaleikari í Múgsefjun, og Dóri járnabindingamaður.
Stefnan
Merkismenn
leggja sig fram um að þjónusta viðskiptavininn. Það má segja að mottóið sé: Orð
skulu standa!
Merkismenn hafa ávallt lagt áherslu á að mennta vel sitt starfsfólk og fylgjast vel með
tækninýjungum.
tækninýjungum.
Merkismenn bjóða þig velkominn í viðskipti!


